Færsluflokkur: Bloggar
5.12.2006 | 18:19
Jólin og missó
Nú er misserisgeðveikin í hámarki. Fyrir þá sem ekki vita er missó tveggja vikna hópaverkefni. Við erum þá ekki í neinum tímum (enda eru prófin búin) heldur erum við bara að gera verkefni sem svipað stórt og lokaritgerð. Ég og minn hópur erum að taka fyrir heimspeki kenningu um tjáningafrelsi og bera hana saman við innflytjendaumræðuna sem átti sér stað í nóvember. Mjög áhugavert og skemmtilegt verkefni að mínu mati
Eftir að við erum búin með verkefni verðum við svo að koma fram í málsvörn og verja verkefnið fyrir framan nemendur og kennara !!!!
Annars er mjög lítið búið að gerast hjá mér annað en skólinn. Fór aðeins heim seinustu helgi og fór að vinna á Salthúsinu. Það var mjög gaman að komast í vinnuna aðeins aftur enda er maður ekkert búinn að vinna síðan í enda ágúst. Á laugardaginn fór ég aðeins í bæinn til þess að kaupa jólagjöf handa Söru sis því hún er farin til USA sem skiptinemi þannig að við þurftum að senda pakkana til hennar á mánudaginn. Í bænum missti ég mig aðeins og keypti jólaskraut og seríur fyrir íbúðina okkar í Njarðvík. Unndór var ekkert voða spenntur yfir því enda er hann ekki jafn spenntur fyrir jólunum og ég. En ég fæ þó að skreyta með því skilyrði að ég sjái líka um að taka skrautið niður hehe. Ég er samt enþá að berjast fyrir því að fá jólatré ![]()
Ég hlakka ekkert smá til að komast í jólafrí í næstu viku. Ég verð að vinna eitthvað á Salthúsinu fyrir jól og svo verð ég vonandi líka eitthvað að vakta togara. Alltaf gott að fá smá auka pening :) Ég er að springa úr jólafílíng þó að hausverkurinn um hvað maður eigi að gefa fólki í jólagjöf sé líka að leggjast yfir mig. En þetta reddast allt saman.
Jæja ég verð allaveg komin í jólafrí 14 eða 15 des svo að eftir það hef ég nægan tíma til að gera eitthvað skemmtilegt með vinum og vandamönnum sem ég er búin að vanrækja síðastliðna mánuði. Þið verðið bara að panta tíma hjá mér hehe :)
Smell jú leitör
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.11.2006 | 15:11
It's been a long, long time!!!!!
Ég er búin að vera að reyna að byrja að blogga síðan í september en einhvernvegin aldrei komið því í verk. En þetta er svona í grófum það sem er búið að gerast síðan ég bloggaði seinast:
- Kom heim frá Mexíkó eftir þvílíkt vel heppnaða ferð.
- Fór strax að vinna á Veitingarhúsinu Salthúsið í Grindavík.
- Fór svo til England í Júlí í 3 vikur.
- Hélt áfram að vinna á Salthúsinu.
- Ég og Unndór fluttum svo til Njarðvíkur í ágúst.

- Í byrjun september byrjaði ég svo í Háskólanum á Bifröst á Félagsvísinda- og hagfræðideild.
- Þann 17. október varð mín loksins tvítug og héldu ég og Elva alveg svaka Hollywood partý.
Það er búið að ganga alveg rosalega vel í skólanum og mér líkar rosalega vel þarna. Ég bý í sumarbústað í Stóruskógum en ég fer nánast allar helgar heim til Unndórs.
Ég kláraði prófin í gær og gengu þau flest öll vel. Mér hefði þó mátt ganga aðeins betur í Rekstrarhagfræði en það kemur bara í ljós hvernig þetta fer. Þessi prófavika var ekkert smá mikið törn og líka vikan áður. Ætli ég hafi ekki sofið svona c.a. 4 klst á nóttu enda var ég alveg búin á því í gær og það var alveg yndislegt að fá að sofa út í morgun.
Núna tekur bara missó við og svo verð ég komin í jólafrí í kringum 15. des
Það er mánuður í jólin og ég get alveg viðurkennt að það er kominn jólafílíngur í mig ![]()
Planið fyrir kvöldið er að skella sér til grindó og hitta Elvu og hugsanlega Hrafnhildi líka.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.5.2006 | 23:52
Kvedja a Klakann
Hola mi amigos. Akvad ad lata adeins i mer heyra hedan fra mexico. Hingad til er ferdin buin ad vera alveg aedisleg hingad til. Vid erum a frabaeru hoteli, alveg vid strondina og tjonustan er mjog god. Tad sem stendur uppur ur ferdinni er snorkling ferd sem eg for i um daginn. Ta for eg ad synda i sjonum og sa allsskonar fiska og nedansjavarskjaldbokur. Svo forum vid i vatn inni skogi ad snorkla og svo i endann i nedansjavarhelli. Tad var geggjad !!! 'A morgun er eg svo ad fara i skemmtigard tar sem planid er ad fara ad synda med hofrungum.
Svo er eg audvitad buin ad fara eitthvad uta lifid. Forum a stad a strondinni sem heitir Blue Parrot og hann var mjog flottur, rolur vid bar bordid, var samt ekki beint hrifin af tonlistinni. Svo forum vid oll sama a stad sem heitir senor frogs. Tad var ekkert sma mikid fjor. Hljomsveit ad spila og vid donsudum eins og vitleysingar.
Er ad hugsa um ad fara nuna og fa mer kvoldmat, alveg magnad ad vera a svona all inclusive hoteli, sparar mannig mikinn pening sem madur hefdi eytt i mat og drykki.
Ciao mi amigos.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.5.2006 | 15:02
Bifröst here I come !
Undanfarnar vikur eru búnar að vera hrein geðveiki. Ég er búin með prófin og náði öllu þannig að ég er sem sagt að fara að útskrifast næsta laugardag
Húfan og fötin komin í hús, búin að bjóða öllum held ég og svo er ég að semja ræðu núna sem ég á að halda á útskriftinni. Þetta er alveg að skella á. Seinustu dagar eru bara búnir að vera ein sæluvíma og ekki dróg gærdagurinn úr því. Ég fór nefninlega í viðtal til Magnúsar sem er deildarstjóri á Bifröst. Viðtalið gekk rosalega vel og eftir það tilkynnti hann mér að ÉG VÆRI KOMIN INN. Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað mér brá þegar hann sagði mér þetta því að ég bjóst ekki við að fá svar strax. Gleði, gleði. Ég er sem sagt á fara á HHS brautina í Bifröst en það er blanda af hagfræði, heimspeki og stjórnmálafræði og ef allt gengur upp þá get ég verið búin með það eftir 2 ár.
Nú er líka kosningarbaráttan að renna af stað svo að það er nóg að gera. Verst bara að ég verð ekki heima á sjálfan kosningardaginn. Ef ykkur langar í gott spjall og vöfflur og svona á kvöldin þá er Samfylkingarhúsið alltaf opið í Skálholti (á móti pósthúsinu). Endilega að kíkja !!
Æ ég veit nú varla hvað ég á að skrifa. Hugurinn er allur við útskriftina og Mexico (brottför eftir viku).
Yfir og út
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
26.4.2006 | 20:03
Sumarið er tíminn !!!
Jii ég er bara ekki alveg að ná því að þessi önn sé að klárast. Það er svo lítið eftir að maður getur farið að telja sekúnturnar fram að útskriftardeginum!! Á morgun er seinasti almennilegi skóladagurinn hjá mér því að föstudagurinn fer allur í dimmisjón og svo er stuttur dagur á þriðjudaginn.
Það er búið að vera brjálað að gera í þessari viku, mikið af prófum og verkefnaskilum. En vegna þess hve margir af mínum áföngum eru próflausir þá er meirihluti áfanganna komnir í höfn. Ég fór til dæmis á kostum í munnlegu prófi í dönsku í dag og er komin með lokaeinkunina 8 í dönsku. Ég er vægast sagt mjög sátt. Það er svo þægilegt að finna það að þetta sé að klárast, ég finn álagið alveg renna af mér. Ég get ekki sagt að ég sé mjög stressuð fyrir prófin, hef nú aldrei lagt það í minn vana að falla og ég held að ég sé ekkert að fara að byrja á því núna. Nú er hugurinn alveg kominn hálfa leið til Mexíkó og mikill spenningur er kominn í Aðalshópinn. En áður en kemur að þeirri ferð er náttúrulega útskriftin 20. maí, sama dag og Eurovision. Það kvöld verður Á móti sól að spila á Salthúsinu þannig að ég get alveg lofað því að það verður mikið fjör.
Veit ekki alveg hvað ég á að skrifa hérna í augnablikinu en ég skal lofa ykkur færslu um helgina þar sem ég segi ykkur frá dimmisjóninu og Síðustu Kvöldmáltíðinni!!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.4.2006 | 15:55
Páskarnir búnir :-(
Páskarnir búnir og vonandi allir búnir að borða á sig gat (eða í sumum tilfellum drekka), ég fékk auðvitað páskaegg en fékk smá hjálp frá fjölskyldunni við að klára það!! Aðeins of mikið súkkulaði fyrir minn smekk. Annar er ég búin að eiga alveg frábært páskafrí. Lengdi það reyndar um smá tíma því að ég mætti ekki í skólann á föstudaginn...
...fór nefninlega á opinn dag uppá Bifröst á fimmtudaginn. Ég og Hafrún pæja fórum saman og kynntum okkur námið og aðstöðuna. Við fengum alveg rosalega góða kynningu þar og mikinn fróðleik. Ég var búin með umsóknina þegar ég kom þangað og skilaði henni inn þannig að nú tekur bara við bið eftir svari, vona að það komi eftir 2-3 vikur
Fyrir þá sem vissu ekki þá var ég að sækja um í HHS(hagfræði, heimspeki og stjórnmálafræði) Hafrún var ekki enn alveg viss hvað hún ætlaði að gera en ég býst nú við að hún eigi eftir að sækja um líka. Þegar kynningin var búin settumst við inná kaffihúsið á Bifröst og biðum eftir henni Lóu sem var í prófi. Svo kom hún og settist hjá okkur og við áttum æðislegt kvöld saman. Fórum meðal annars út að borða og lentum í rosa torfæru á leiðinni heim hehe
Við vorum sem sagt langt fram á nótt uppá Bifröst en fórum svo í Hafnafjörðinn heim til Hafrúnar og ég fékk að gista hjá henni.
Páskafríinu var svo slúttað á laugardaginn þegar lokahóf körfuboltans var haldið og Stuðmenn héldu uppi fjörinu í Festi. Ég var reyndar að vinna uppá Salthúsi langt fram eftir kvöldi. Ég og Heiða vorum að þjóna á árshátíð kennaranna. Það var það mikið stuð hjá þeim að þeir fóru ekki heim fyrr en klukkan var að ganga eitt og ég og Heiða á leiðinni á ball !!! Við redduðum nú málunum bara þannig að við létum skutla til okkar fötunum og klæddum okkur bara uppá Salthúsi. Helltum svo í okkur á 30 mínútum og skelltum okkur á ballið. Það var rosalega gaman á ballinu og voru allir mjög hressir.
Nú er bara lokatörnið eftir í skólanum. Ég er í alveg endalaust mörgum prófum í þessari viku og brjálað að gera. Núna er ég í ensku tíma og verð víst að fara að vinna eitthvað.
Bæjó
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.4.2006 | 08:46
Sól, sól skín á mig!! -Hverjum langar í lónið?
Það lítur allt í fyrir að ósk mín hafi ræst. Í gær kvartaði ég sáran út af veðrinu, í morgun þegar ég vaknaði (sem var btw kl 8, dugnaður) skein sólin inn um gluggann og ég er ekki frá því að hafa heyrt fuglasöng líka. Frábært að byrja daginn svona. Nú er ég aftur sest við tölvuna, sat hérna í í allnokkra klukkutíma í gær. Held ég hafi aldrei verið svona lengi að gera eina ritgerð. En ég held að tveir tímar ættu að duga núna og svo er hún tilbúin ![]()
Svo er komið rosa plan fyrir daginn í dag. Ég og Hrafnhildur erum búnar að vera að smala saman liði til að fara í lónið seinnipartinn, sennilega á milli 5 og 6. Það eru allmargir búinir að sýna áhuga á að mæta og vonandi koma bara sem flestir. Það eru engar fjöldatakmarkanir þannig að, því fleirri því betri. Svo eftir lónið ætlum við stelpurnar að skella okkur heim til Hrafnhildar og taka smá spil og hugsanlega drekka smá mjólk. En svo er aldrei að vita nema maður kíki eitthvað út í kvöld en það kemur bara seinna í ljós. En ef þið viljið koma með í lónið þá bara annað hvort að mæta bara á staðinn eða hafa samband við okkur fyrst. ![]()
Ef þú brosir framan í sólina, brosir sólin framan í þig !!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.4.2006 | 10:58
Hvar er sólin?? -Kannski í Saintes-Maries-de-la-mer??
Fyrir um það bil viku sagði ég við Elvu: Jæja, næst þegar það er gott veður þá förum við í göngutúr. Svo liður dagarnir og ég er enþá að bíða eftir góða veðrinu. Það er búið að vera rok og rigning of lengi og að mínu mati er alveg kominn tími á að sólin fari að láta sjá sig. Ég ætlaði að vera svo dugleg að hreyfa mig í páskafríinu (enda kannski kominn tími til), var til dæmis búin að taka sundbolinn fram en í gær var sundlaugin bara lokuð vegna veðurs. Hvað er málið!!! Ég sem hélt að sumarið væri komið.
Ég er sem sagt komin í páskafrí núna en út af einhverjum aulaskap í sjálfri mér þá get ég nú ekki sagt að ég sé komin í frí. Á enþá eftir að klára dönskuritgerð, en ég ætla að leggjast yfir hana í dag og rumpa þessu af. Kannski ekki seinna vænna! En betra er seint en aldrei. Right?
Ég lenti í einu skemmtilegu atviki í gær. Í tenglsum við dönskuritgerðina mína þá var ég að skoða bók sem heitir Saga listarinnar. Ég var að lesa um Van Gough þegar ég sé eina mynd eftir hann sem heitir Saintes-Maries-de-la-mer og mér fannst ég kannast eitthvað við nafnið. Þetta þorp er í Suður-Frakklandi, rétt hjá þar sem ég bjó í eitt ár. Ég fór í úrklippubókina mína frá þessu ári og fann þá einmitt póstkort sem ég hafði keypt í þorpinu. Svo var líka mynd af mér uppá einhverju þaki í þorpinu. Svo fór ég að bera saman myndina af mér og myndina sem Van Gouhg teiknaði árið 1888 þá sé ég að myndirnar eru af nákvæmlega sama hluta af þorpinu. Ég sé kirkjuturninn á þeim báðum og húsin í kring. Þetta var svoldið skrýtin tilfinning, leið eins ég væri komin inní myndina hans. Magnað!
Þessi síða er svona enþá í vinnslu, er að reyna að átta mig á hvernig þetta virkar allt. Tenglarni hægr megin virka ekki og ég hef ekki hugmynd um afhverju. Öll hjálp vel þegin.
Back to work.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
10.4.2006 | 15:04
Lokatilraun.
Eins og flestir vita sem hafa eitthvað fylgst með mér blogg þá hef ég aldrei verið talinn góður bloggari. Ég blogga sjaldan og það er ekki oft sem þar sem ég hef eitthvað vitsmunalegt að segja. En nú ætla ég að taka mig á í seinasta skipti og ef að þetta tekst ekki þá eruð þið búin að losna við mig úr bloggheiminum endanlega.
Ég heiti því hér með að vera dugleg að blogga og að hver bloggfærsla verði að minnsta kosti aðeins áhugaverð.
Kveðja
Marta
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)













